FINNA

Tryggjum heilbrigt umhverfi í skipum

Véltak tækni skapar heilbrigt vinnuumhverfi 

Síðasta aldarfjórðung hefur mikil athygli verið vakin á ytri mengun; þá allra helst koltvíoxíð útblástri úr vélum og iðnaði út í andrúmsloftið. Þó hefur lítið borið á þeim heilsu vandamálum sem fylgja innri mengun skipa.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að þeir sem hafa starfsvettvang um borð skipa eiga við mun verri heilsuvandamál að stríða en hjá öðrum stéttum landsins. Véltak ehf. tekur á þessu vandamáli með því að bæta innra umhverfi skipa.      

Olíugreining

OilGasSeparator (OGS-2) hreinsar smurolíu 99.99% fyrir fjórgengis dieselvélar. Að aðskilja olíu frá gasi hefur í för með sér að nýtni vélarinnar eykst og notkun smurolíu minnkar um allt að 30-47%. OGS-2 tæmir sveifarhúsið af olíugufum. Olíugufan inniheldur ýmsar brennisteinssýrur ásamt ýmsum öðrum sýrumyndandi gastegundum sem koma m.a. niður með stimplunum. Þessum gastegundum er dælt frá OGS-2 til túrbínunnar og brenna þar í vélinni. OGS-2 er sjálfstæð eining til staðsetningar í vélarúmi og passar á allar gerðir dieselmótora frá ca. 1200 hp.

Til að fræðast meira um OGS-2 bendum við á OGS-2 síðuna okkar sem má nálgast með því að ýta á hnappan hér fyrir neðan. Þar má finna frekari upplýsingar sem og dæmi úr raunveruleikanum þar sem OGS-2 hefur komið við sögu.



                                                                                                                                                           

      

Fréttir

10. júlí 2009



Veltak Lausnir

      Kemur í veg fyrir óhreinindi í túrbínu og skolloftskæli. Eykur orkunýtingu, minnkar eldsneytissóun og lækkar afgashita.

      Kemur í veg fyrir að afgasreyk og vatn sogast inn í vistarverur og vélarúm skipa. Skilur að sót, sjó og salt.

      Olíu og vatsskilja. Nýjung: "Back-Flux" síubotnhreinsun er framkvæmd til að hreinsa vatn og óhreinindi sem safnast saman undir botni síunnar. Tryggir eðlilegt flæði olíu til vélar. 

      Kemur í veg fyrir bilaðar og stíflaðar síur og eldsneytislagnir. Eykur nýtni eldsneytis vegna hreinni bruna. Lækkar rekstrarkostnað.

      Hreinsar hydraulikk- og smurolíur af vatni og óhreinindum allt niður í 2-4 NAS. Mikill fjöldi síugerða sem henta ýmsum aðstæðum.

     Miðflótarafls olíuskilja.      

     Betrum bætir smurolíu virkni.

Véltak ehf. - Hvaleyrabraut 3, 220 Hafnarfjörður - Sími: 565 1236 - Fax: 565 1263 - veltak@veltak.is